Heimsfrægir höfundar á Garðatorgi
Viðburður sem áhugafólk um spennu- og glæpasögur ætti alls ekki að láta fram hjá sér fara.
Miðvikudaginn 20. nóvember býður Garðabær í samvinnu við bókmenntahátíðina Iceland Noir í áhugavert höfundaspjall á Garðatorgi.
Dagskráin hefst klukkan 19.00 þegar Almar Guðmundsson, bæjarstóri Garðabæjar, opnar samtalið. Þá tekur Eliza Reid við og ræðir við metsöluhöfundinn Anthony Horowitz. Hann hefur skrifað um meðal annars James Bond og Sherlock Holmes og er einnig maðurinn á bak við sjónvarpsþætti á borð við Midsomer Murders og Foyles War.
Því næst mun Yrsa Sigurðardóttir ræða við dönsku spennusagnadrottninguna Söru Blædel sem er þekktust fyrir bækur sína um lögreglukonuna Louise Rick. Sara er einn vinsælasti höfundur samtímans í Danmörku og hafa bækur hennar verið þýddar á yfir 30 tungumál, þar á meðal íslensku.
Guðfinnur Sigurvinsson, formaður Menningar- og safnanefndar Garðabæjar, mun stýra dagskránni.
Höfundaspjallið fer fram í salnum Sveinatungu á Garðatorgi og hefst dagskráin klukkan 19:00.