• 23.6.2018, 14:00 - 16:00, Sandahlíð - skógræktarsvæði Skógræktarfélags Garðabæjar

Gróðursetning Fullveldislundar í Sandahlíð

  • Gróðursetning

Laugardaginn 23. júní  kl. 14-16 verður aldarafmæli fullveldis Íslands minnst með gróðursetningu Fullveldislundar á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð. Létt og skemmtileg gróðursetning fyrir alla og mun Frú Vigdís Finnbogadóttir taka þátt í henni. 

Verkfæri á staðnum og aðstoðarmenn og skógfræðingar leiðbeina við gróðursetningu. Veitingar í boði fyrir gesti og Hestamannafélagið Sprettur býður yngri kynslóðinni á hestbak. Leiktæki fyrir börn. Næg bílastæði á svæðinu. 

Hjartanlega velkomin í skóginn milli kl. 14:00 – 16:00 en Sandahlíðin er vaxin fallegum útivistarskógi sem gaman er að njóta. 

Líf í lundi er útivistar- og fjölskyldudagur í skógum landsins, sem skógaraðilar á Íslandi standa sameiginlega að. Nánari upplýsingar um viðburði verður hægt að finna á skogargatt.is og skoggb.is
 
Skógræktarfélag Garðabæjar
Skógræktarfélag Íslands