• 16.2.2019, 17:00

Hildigunnur Birgisdóttir - UNIVERSAL SUGAR - Listasafn ASÍ

  • Hildigunnur Birgisdóttir UNIVERSAL SUGAR

Opnun laugardaginn 16. febrúar kl. 14 í Vestmannaeyjum og kl. 17 Garðabæ. Sýningarnar standa til 28. febrúar og eru opnar alla daga kl. 14 – 17.

Opnun laugardaginn 16. febrúar kl. 14 í Vestmannaeyjum og kl. 17 Garðabæ. 
Sýningarnar standa til 28. febrúar og eru opnar alla daga kl. 14 – 17.  

Sýningin í Garðabæ er að Löngulínu sjá nánari leiðarlýsingu á vef Listasafns ASÍ. 

Viðburður á facebook

Hildigunnur Birgisdóttir er annar listamaðurinn sem velst til þátttöku í nýrri sýningaröð Listasafns ASÍ þar sem sýnd eru nýjustu verkin í eigu safnsins. Sýningar Hildigunnar opna samhliða og standa jafnlengi í Garðabæ og Vestmannaeyjum og bera sama nafn á báðum stöðum. Viðfangsefni sýninganna, sem við fyrstu sýn virðast mjög áþekkar, endurspegla á margan hátt samfélagið á hvorum stað fyrir sig og sama má segja um húsnæðið sem þær hýsir.
UNIVERSAL SUGAR í Vestmannaeyjum og Garðabæ eru í raun sama sýningin, birtingarmyndir hennar eru óteljandi en hér birtast tvær þeirra. Umgjarðir sýninganna auka enn á áhrifin, tvö mjög ólík rými frá mismunandi tímum hvort með sína sögu. 

Í verkum sínum hefur Hildigunnur rannsakað flókin kerfi með notkun hrekklausra eða jafnvel barnslegra tenginga. Hún leikur sér með spennuna sem myndast getur milli þarfar okkar til að útbúa óhlutbundin þekkingakerfi og líkamlegra þolmarka skynkerfa okkar. Verk Hildigunnar afhjúpa annmarka, sérvisku og fjarstæðukennd atriði sem finna má í sköruninni á milli hugsjónar og mannlegra skilningskerfa. Slíkur ágangur kemur sér ekki bara vel, heldur liggur hann til grundvallar verkum Hildigunnar, og gerir áhorfandann óvænt að miðju alheimsins. 

Hildigunnur Birgisdóttir (f. 1980) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003. Verk hennar hafa verið sýnd í Listasafni Reykjavíkur, Kling & Bang, Nýlistasafninu, Annaellegallery í Stokkhólmi, Gallerí i8 og nú síðast á tvíæringnum Stöðum á sunnanverðum Vestfjörðum. 

Listasafn ASÍ vinnur nú að því að koma sér upp nýjum sal og á meðan eru sýningar safnsins á eldri og nýrri verkum haldnar í samstarfi við stofnanir og samtök víðsvegar um landið. Kallað er árlega eftir tillögum frá myndlistarmönnum sem vilja taka þátt í nýjustu sýningarröðinni og eitt verkefni valið hverju sinni. Sýningarstaðirnir eru valdir í samvinnu við listamennina sem hlut eiga að máli hverju sinni og eru til skiptis á höfuðborgarsvæðinu og í öðrum landshlutum. 

Samhliða sýningum á nýjustu verkunum í eigu safnsins eru haldin listnámskeið fyrir leik- og grunnskólabörn þar sem unnið er með elstu verkin í safneigninni.