• 17.6.2020, 12:00 - 17:00, Hönnunarsafn Íslands

Hönnunarsafn: Opnun - Pappírsblóm eftir Rúnu Þorkelsdóttur

  • Sýningin Pappírsblóm

Sýningaropnun í Hönnunarsafnið Íslands miðvikudaginn 17. júní

Rúna Þorkelsdóttir er myndlistarkona, bókagerðarmaður og stofnandi bókabúðarinnar Boekie Woekie í Amsterdam. Hún gerðist óvænt munsturhönnuður fyrir eitt virtasta tískuhús heims, Comme des Garcons í gegnum bókverk sitt Paperflowers.

17. júní opnar sýning í stigagangi Hönnunarsafns Íslands á þessu fallega og skemmtilega verkefni. Opnunin stendur frá 12-17 þar sem rými í stigaganginum er takmarkað. Sérstök hátíðarstemning verður þó kl. 14.00 þegar blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar mætir og spilar fyrir gesti fyrir utan safnið. 

Viðburður á fésbókarsíðu Hönnunarsafnsins. 

Sjá einnig hátíðardagskrá á 17. júní í Garðabæ. 

Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 í Garðabæ.