• 24.4.2023 - 8.5.2023, Garðabær

Hreinsunarátak Garðabæjar

  • Hreinsunarátak Garðabæjar fer fram 24. apríl -8. maí 2023.

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar verður að þessu sinni dagana 24. apríl – 8. maí nk. en þá eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. 

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar verður að þessu sinni dagana 24. apríl – 8. maí nk. en þá eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. Hópar geta sótt um að fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi og geta fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar. Áhugasamir hópar geta haft samband við verkefnastjóra garðyrkjudeildar, s. 820 8574, lindajo@gardabaer.is.

Íbúar eru hvattir til að sýna gott fordæmi með því að taka nærumhverfi í fóstur og hlúa að því. Starfsmenn bæjarins munu hirða upp alla poka og annað eftir ruslatínslu bæjarbúa, hópa eða einstaklinga. Hægt er að nálgast poka í áhaldahúsinu við Lyngás 18 og þátttakendur eru hvattir til að flokka plast sérstaklega frá öðru rusli í glæran plastpoka.