Íbúafundir: Hvað er að frétta í Garðabæ?
Komdu og ræddu málin við bæjarstjóra Garðabæjar og sviðsstjóra.
Fundirnir eru skipulagðir út frá hverfum bæjarins en athygli er vakin á því að hverfaskiptingin er aðeins leiðbeinandi og eru fundirnir opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.
Dagsetningar:
- Fyrsti fundur verður haldinn í Álftanesskóla þann 9. október, klukkan 19:30.
- Annar fundur fer fram í Flataskóla þann 14. október, klukkan 19.30.
https://fb.me/e/6EWVPLJNh - Þriðji fundurinn verður haldinn 16. október klukkan 19.30 í Urriðaholtsskóla.
https://fb.me/e/8ToNZ3lyx
Yfirskrift fundanna er „Hvað er að frétta í Garðabæ. Hvernig líður krökkunum okkar, hvað er að frétta í skólamálum og velferðarmálum og hvernig standa framkvæmdir í bænum?“