• 4.2.2022, 16:00 - 17:30, Sveinatunga

Íbúafundur um deiliskipulag íbúðabyggðar við Víðiholt og deiliskipulag hesthúsabyggðar á Álftanesi

  • Víðiholt deiliskipulag

Nýr tími fyrir kynningarfund um deiliskipulagstillögurnar verður föstudaginn 4. febrúar nk. kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn í Sveinatungu á Garðatorgi og jafnframt í beinni útsendingu á fésbókarsíðu Garðabæjar.

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur auglýst tillögur að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt og deiliskipulagi hesthúsabyggðar á félagssvæði hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Kynningarfundur - föstudaginn 4. febrúar nk. kl. 16-17:30.

Nýr tími fyrir kynningarfund sem upphaflega átti að halda í haust og síðar í janúar er núna föstudagurinn 4. febrúar nk. kl. 16:00-17:30 Fundurinn verður bæði staðfundur og í beinni útsendingu.
Fundurinn verður haldinn í fundarrými Garðabæjar í Sveinatungu, Garðatorgi 7, þar sem takmörk eru á fjölda gesta og grímuskylda. Fundinum verður einnig streymt beint á fésbókarsíðu Garðabæjar. Hægt verður að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur í gegnum útsendinguna á fésbókarsíðunni.

Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar.

Hér er hægt að sjá útsendingu frá íbúafundinum í glugga fyrir neðan - til að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur þarf að horfa á útsendinguna á fésbókarsíðu Garðabæjar.

Útsending.

Víðiholt íbúðabyggð – Tillaga að deiliskipulagi - sjá gögn í auglýsingu hér

  • Tillagan nær til óbyggðs svæðis á milli hesthúsabyggðar og íbúðarbyggðar við Asparholt.
  • Tillagan gerir ráð fyrir íbúðarbyggð á 2-3 hæðum, alls 75 íbúðir í fjölbýli og raðhúsum, aðkomuvegi frá Breiðumýri og opnu svæði til norðvesturs. 

Hesthúsahverfi í Breiðumýri – Tillaga að deiliskipulagi - sjá gögn í auglýsingu hér

  • Tillagan nær til núverandi hesthúsabyggðar á félagssvæði hestamannafélagsins Sóta.
  • Tillagan tekur m.a. á hesthúsabyggð, félagsheimili, reiðskemmu og reiðstígum en markmiðið með deiliskipulaginu er að svæðið falli vel að nærliggjandi íbúðarbyggð.

Athugasemdarfrestur er framlengdur og verður til og með 16. febrúar 2022.

Tillögurnar eru aðgengilegar hér á vef Garðabæjar.  
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ