Íþróttahátíð Garðabæjar - tilkynnt um val á íþróttafólki
Tilkynnt verður um val á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar á íþróttahátíð Garðabæjar sem fer fram sunnudaginn 7. janúar 2024 í Miðgarði kl. 13:00.
Tilkynnt verður um val á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar á íþróttahátíð Garðabæjar sem fer fram sunnudaginn 7. janúar 2024 í Miðgarði kl. 13:00. Þar mæta þeir tíu íþróttamenn sem tilnefndir voru til íþróttafólks Garðabæjar. Á hátíðinni verða veittar viðurkenningar til þeirra sem kepptu með A-landsliði eða U-landsliði í fyrsta skipti á árinu 2023. Einnig fyrir árangur á erlendum vettvangi svo sem á EM, HM eða öðrum sterkum alþjóðlegum mótum á árinu og þá verður lið ársins einnig útnefnt. Þá verða útnefndir þjálfarar ársins og heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum afhentar.