Ljósin tendruð á jólatrénu á Álftanesi
Jóladagur foreldrafélags Álftanesskóla verður haldinn sunnudaginn 8. desember í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi. Dagskrá innandyra stendur frá kl. 14-16 en kl. 16:10 verða ljósin tendruð á jólatrénu fyrir utan íþróttamiðstöðina.
Jóladagur foreldrafélags Álftanesskóla verður haldinn sunnudaginn 8. desember í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi. Dagskrá innandyra stendur frá kl. 14-16.
Kl. 16:10 verða ljósin tendruð á jólatrénu fyrir utan íþróttamiðstöðina.
- Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar og sr. Hans Guðberg Alfreðsson flytja stutt ávörp
- Dansað í kringum jólatréð - Hrafnkell Pálmarsson og Pálmar Ólason spila og syngja jólalög
- Jólasveinar mæta fyrr til byggða
Ljósin tendruð á jólatrénu á Álftanesi - viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar
Jóladagur foreldrafélags Álftanesskóla - viðburður á fésbókarsíðu foreldrafélagsins