Jónsmessugleði Grósku - Stórsýning
Myndlistarfélagið GRÓSKA í Garðabæ heldur stórsýningu á Garðatorgi 1 og í Gróskusalnum 22.-29. júní, þar sem Gróskufélagar ásamt gestalistamönnum sýna fjölbreytt listaverk.
Ýmsir aðrir listviðburðir verða í boði; tónlist, dans, gjörningar o.fl.
Jónsmessugleðin er haldin í 14. sinn. Allir hjartanlega velkomnir. Opnun verður 22. júní kl. 14.
Opið á torginu kl.08-19 og í Gróskusalnum kl.14-18 alla sýningardagana.
Verkefna- og sýningarstjóri er Birgir Rafn Friðriksson - BRF.