Klassíski leshringurinn í Bókasafni Garðabæjar
Fyrsti fundur vetrarins hjá klassíska leshringnum í Bókasafni Garðabæjar verður haldinn þriðjudaginn 26. september kl. 10:30.
Leshringurinn hittist annan hvern þriðjudag, kl.10:30 - 12, í lesstofu Bókasafns Garðabæjar, Garðatorgi 7, 26. september - 5. desember 2023.
Lesin verða verk tólf íslenskra nútíma karlrithöfunda sem mörg hver fjalla um málefni sem snerta samtímann. Fræðst verður um höfundana og rabbað á léttum nótum um efnið, lífið og tilveruna.
Kaffi í boði.
Nýir meðlimir velkomnir.