• 29.1.2019, 18:00, Bókasafn Garðabæjar

Klausturhald á Íslandi kl. 18

  • Klausturhald á Íslandi

Þriðjudaginn 29. janúar kl.18:00 mun fornleifafræðingurinn dr. Steinunn Kristjánsdóttir fjalla um rannsókn sína á klausturhaldi á Íslandi í Bókasafni Garðabæjar. 

Þriðjudaginn 29. janúar kl.18:00 mun fornleifafræðingurinn dr. Steinunn Kristjánsdóttir fjalla um rannsókn sína á klausturhaldi á Íslandi í Bókasafni Garðabæjar. Steinunn hefur um árabil unnið að rannsóknum á klausturhaldi á Íslandi meðal annars við Skriðu á Fljótdalshéraði. Mörg klaustur voru á Íslandi fram til siðaskipta árið 1550. Þá voru klaustrin lögð af og eignir þeirra gerðar upptækar. 
Gefnar hafa verið út þrjár bækur um rannsóknarverkefni Steinunnar: Sagan af klaustrinu á Skriðu, Bláklædda konan : ný rannsókn á fornu kumli og Leitin að klaustrunum : klausturhald í fimm aldir. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Viðburðurinn á facebook.