• 30.11.2024, 13:00 - 15:00, Bókasafn Garðabæjar

Klippimyndasmiðja fyrir börn

Búði til þitt einstaka jólatré!

Í þessari stórskemmtilegu jólakortasmiðju mun Linn Janssen, sem er myndhöfundur bókarinnar Einstakt jólatré eftir Benný Sif Ísleifsdóttur, sýna börnum hvernig hægt er að búa til skemmtileg jólakort með klippimyndatækni. Börnin fá að teikna jólatré og klippa úr gömlum blöðum og bókum til að skreyta kortin sín.

Það verður hugguleg jólastund og mikil sköpunargleði!