• 9.3.2022, 17:00 - 18:00, Garðaskóli

Kynning í Garðaskóla

  • Innritun í grunnskóla

Grunnskólakynning verður í Garðaskóla miðvikudaginn 9. mars kl. 17-18.

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda. Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margskonar fróðleik um skólastarfið.

GARÐASKÓLI

Opið hús/kynningar verða miðvikudaginn 9. mars, kl: 17:00–18:00 og 20:00-21:00
S. 590 2500 , netfang: gardaskoli@gardaskoli.is
gardaskoli.is