• 25.8.2020, 17:00 - 18:00, Fjarfundur á Facebook

Kynningar-fjarfundur 25. ágúst kl. 17 um tillögur að breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi á Norðurnesi á Álftanesi. Forkynning

  • Hvað finnst þér?

Þriðjudaginn 25. ágúst kl. 17:00 verður kynningar-fjarfundur um forkynningu á tillögum að breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi á Norðurnesi á Álftanesi. Fundurinn verður fjarfundur og fer fram í gegnum Facebook

NORÐURNES Á ÁLFTANESI. TILLÖGUR AÐ BREYTINGU Á AÐALSKIPULAGI GARÐABÆJAR 2016-2030 OG NÝJU DEILISKIPULAGI. FORKYNNING - KYNNINGAR-FJARFUNDUR

Í samræmi við 2. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsti Garðabær þann 11. júní síðastliðinn forkynningu á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 og tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Norðurnes á Álftanesi sem er innan þess svæðis sem aðalskipulagsbreytingin nær til.

Áður boðaður kynningarfundur verður haldinn þann 25. ágúst kl. 17:00 og lýkur kl. 18:00. Vegna gildandi samkomutakmarkanna verður fundurinn fjarfundur og honum streymt á Facebook síðu Garðabæjar.  
Viðburður á facebook síðu Garðabæjar.

Hægt verður að senda rafrænar fyrirspurnir (komment) í gegnum Facebook á meðan á fundinum stendur eða með því að senda tölvupóst á netfangið skipulag@gardabaer.is og verður þeim svarað að lokinni kynningu. 

Fundurinn verður tekinn upp og verður aðgengilegur á Facebook- og heimasíðu Garðabæjar. Bent er á að í framhaldi af kynningarfundi geta aðilar leitað til skipulagsstjóra varðandi nánari upplýsingar og eftir atvikum óskað eftir fundi.

Allar nánari upplýsingar og gögn má nálgast hér á heimasíðu Garðabæjar.

Frestur til að skila inn ábendingum rennur út 31. ágúst 2020. Skila skal ábendingum á bæjarskrifstofu Garðabæjar eða á netfangið skipulag@gardabaer.is