Kynningarfundur vegna forkynningar á skipulagsmálum í Garðabæ - Vífilsstaðaland, Vetrarmýri o.fl.
Kynningarfundur verður haldinn í fundarsal Sveinatungu, Garðatorgi 7, miðvikudaginn 11. desember kl 17:00.
ATH ný dagsetning á fundinum (ekki 10. des eins og áður var auglýst - frestað um sólarhring vegna afleitrar veðurspár)
Kynningarfundur verður haldinn í fundarsal Sveinatungu, Garðatorgi 7, miðvikudaginn 11. desember kl 17:00. Þar verða eftirfarandi tillögur kynntar:
- Vífilsstaðaland, þróunarsvæði B. Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, tillaga að breytingu. Rammahluti aðalskipulags.
- Vetrarmýri - blönduð byggð. Tillaga að deiliskipulagi.
- Hnoðraholt norður – íbúðabyggð og verslun og þjónusta. Tillaga að deiliskipulagi.
- Rjúpnadalur - kirkjugarður og meðferðarstofnun. Tillaga að deiliskipulagi.
Tillögurnar eru aðgengilegar á vef Garðabæjar.
Boðið upp á kakó og ristaðar möndlur.
Verið velkomin!