• 14.9.2024, 11:30, Bókasafn Garðabæjar

Lesið fyrir hund

Hvað er skemmtilegra en að lesa fyrir hund? Skráning er nauðsynleg.

Börn geta tekið heimalesturinn sinn eða einhverja spennandi bók og lesið fyrir sérþjálfa hunda frá Vigdísi - vinir gæludýra á Íslandi.
Takmarkað pláss er á þennan viðburð og þess vegna er nauðsynlegt að skrá sig, annað hvort í síma 591 4550 eða með tölvupósti bokasafn@gardabaer.is. Gefa þarf upp nafn og aldur barns og nafn, kennitölu, símanúmer og netfang þess sem mætir með barninu á safnið.