Lesið fyrir hund á Garðatorgi
Lesið fyrir hund laugardaginn 9.september frá kl. 11:30 í Bókasafni Garðabæjar.
Lesið fyrir hund laugardaginn 9.september frá kl. 11:30 í Bókasafni Garðabæjar. Skráning nauðsynleg.
Börn geta tekið heimalesturinn sinn eða spennandi bók sem þau eru að lesa og lesið fyrir sérþjálfa hunda frá Vigdísi - Félagi gæludýra á Íslandi.
Nauðsynlegt er að skrá sig og bóka pláss í síma 591 4550 eða með tölvupósti bokasafn@gardabaer.is
Það þarf að gefa upp nafn og aldur barns og nafn, kennitölu, símanúmer og netfang þess sem mætir með barninu á safnið.
Takmarkað pláss.
Verið hjartanlega velkomin!