• 13.3.2021, 13:00 - 14:00, Bókasafn Garðabæjar

Listamannaspjall

  • Listamannaspjall

Listamenn marsmánaðar eru Gunnar Júlíusson og Ingunn Jensdóttir.Gunnar og Ingunn verða í Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 13. mars frá klukkan 13 til 14 og spjalla við gesti og gangandi.

Listamenn marsmánaðar eru Gunnar Júlíusson og Ingunn Jensdóttir.Gunnar og Ingunn verða í Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 13. mars frá klukkan 13 til 14 og spjalla við gesti og gangandi.Gunnar er grafískur hönnuður, myndskreytir og skopmyndateiknari, en nú á síðari árum hefur hann einbeitt sér að list í ýmsum öðrum miðlum og hefur þá aðallega unnið með kol og pastel á gamalt timbur. Einnig málar hann verk í tölvu sem eru prentuð á stórar álplötur. Hann vinnur einnig með olíu og akrýl á striga, vatnsliti og gluggafilmur. Hann hefur verið með nokkrar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum.
Ingunn Jensdóttir hefur numið myndlist víða. Meðal annars nam hún teikningu í Kaupmannahöfn, vatnslitamálun og olíumálun lærði hún í Myndlistarskóla Kópavogs og hefur setið Master Class námskeið hjá Bjarna Sigurbjörnssyni. Ingunn hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum.Sýningin er opin á opnunartíma safnsins út mars og er sölusýning.