Námskeið í körfugerð
Tveggja daga námskeið með Guðrúnu Pétursdóttur
Á þessu tveggja daga námskeiði lærir þú að gera fléttukörfu úr melgresi og öðrum stráum. Aðferðin er stundum kennd við Burkina Fasó en körfur með svipuðum vefnaði hafa einnig fundist á Spáni og Skotlandi. Við byrjum á því að æfa tæknina sem þarf til að gera fjölbreytt úrval af körfum.
Þátttakendur fá einnig fræðslu um nýtingu á íslenskum efnivið til sköpunar, hvernig og hvenær er best að safna efni og þurrka það. Í lokin gerir hver og einn körfu þar sem sköpunargleðin fær að blómstra.
Kennari er Guðrún Pétursdóttir. Kennt er frá 13:00 til 16:00 báða dagana.
Nánari upplýsingar um námskeiðið á vef Hönnunarsafns Íslands.