• 24.1.2025, 13:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands

Námskeið: Sjáðu! Bækur

Í þessu námskeiði er unnið með bækur á áþreifanlegan hátt. Fyrir öll þau sem hafa áhuga á bókum.

Í vinnusmiðjunni Sjáðu! bækur verður lögð áhersla á að vinna með bækur á áþreifanlegan hátt. Þátttakendur fá að kynnast bókum með því að horfa, snerta og eiga við. Hver þátttakandi fær bók í hendur sem hann mun gaumgæfa, lýsa og síðan breyta, og um leið kanna hvernig litlar breytingar eins og að brjóta saman, skera eða fjarlægja geta umbreytt því hvernig maður upplifir hlut, og möguleikunum sem hann býður upp á.

Efniviður og áhöld verður til staðar, en þátttakendum er velkomið að koma með verkfæri sem þeim þykir spennandi að nota.

Vinnusmiðjan er ætluð öllum sem hafa áhuga á bókum, vönu bókagerðarfólki, hönnuðum, lestrarhestum og allt þar á milli.

Ath að aðeins 12 pláss eru í boði og gjaldið fyrir námskeiðið er 5.500 kr. Nauðsynlegt er að bóka námskeiðið á tix.is

Smiðjuna leiða grafísku hönnuðirnir Jana Sofie Liebe og Una María Magnúsdóttir. Nánari upplýsingar á vef Hönnunarsafns Íslands.