• 29.6.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 6.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 7.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 13.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 14.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 20.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 21.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 27.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands
  • 28.7.2021, 14:00 - 16:00, Hönnunarsafn Íslands

Ókeypis listsmiðjur fyrir krakka

Ókeypis listsmiðjur á þriðjudögum og miðvikudögum í júní og júlí fyrir krakka í Garðabæ frá 14-16. 

Krakkar í Garðabæ og þeirra gestir geta glaðst því í hverri viku verður boðið upp á ókeypis smiðjur sem þær Guðný Sara Birgisdóttir og Birna Berg leiða en þær eru báðar sumarstarfsmenn menningarmála í Garðabæ. Smiðjurnar fara fram á þriðjudögum og miðvikudögum klukkan 14-16 og fara flestar fram í Hönnunarsafni Íslands. Þegar vel viðrar munu þær stöllur flytja sig út en tilkynnt verður um nánari staðsetningu á facebooksíðu Garðabæjar í sérstökum viðburði fyrir hverja smiðju. Birna Berg og Guðný Sara verða að störfum út júlímánuð og munu kenna krökkum að nota efni sem allir geta fundið heima hjá sér eða í nánasta umhverfi hvort sem er rusl eða náttúruleg efni.

Rétt er að benda á að Bókasafn Garðabæjar býður upp á þriðjudagsleika alla þriðjudaga frá kl. 13-14 á Garðatorgi og tiktok-aðstoð á sama tíma á miðvikudögum og því geta Garðabæjarkrakkar mætt fyrst á Bókasafnið og farið svo yfir í smiðju til Guðnýjar Söru og Birnu Berg.Börn undir 9 ára aldrei þurfa að hafa fullorðinn með sér í listsmiðjurnar.

Birna Berg Bjarnadóttir er 18 ára Garðbæingur með bakgrunn í dansi, leiklist og söng. Hún hefur komið fram á ýmsum uppákomum t.d. á Jazzhátíð í Ystad, Svíþjóð, tónlistarviðburðum og árshátíðum. Birna er verðlaunahafi í söng- og lagasmíðakeppninni Upptaktinum og verðlaunahafi í Nýsköpunarkeppninni Verksmiðjan 2019.
Guðný Sara Birgisdóttir er 28 ára listakona með gráðu í myndlist og meistarapróf í hönnun frá Listaháskóla Íslands. Guðný er reynslumikil í hvers kyns smiðjustarfi og beitir nýstárlegum aðferðum og spennandi nálgunum í listsköpun.