• 5.3.2020, 20:00, Urriðaholtsskóli

Opið hús vegna innritunar nemenda í Urriðaholtsskóla

  • Urriðaholtsskóli - teikning

Opið hús verður vegna innritunar nemenda í Urriðaholtsskóla fimmtudaginn 5. mars kl. 20

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.

Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.

Upplýsingar um innritun fyrir skólaárið 2020-2021.

URRIÐAHOLTSSKÓLI
Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra nemenda í 1.-6. bekk verður haldinn í skólanum fimmtudaginn 5. mars nk. kl. 20:00. Kynning verður á skólastarfinu. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skólann og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
S. 591 9500
urridaholtsskoli.is