• 6.2.2026, 18:00 - 22:00, Bessastaðir

Safnanótt - Opið hús á Bessastöðum

  • Bessastaðir

Í tilefni Safnanætur á Vetrarhátíð verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi, föstudagskvöldið 6. febrúar frá 18-22.

Í tilefni Safnanætur á Vetrarhátíð verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi, föstudagskvöldið 6. febrúar frá kl.18:00 til 21:00. Klukkan 18.30 og kl. 20.00 verður Anna Jóhannsdóttir listfræðingur með fræðslu um listaverk í eigu Listasafns Íslands sem prýða staðinn. Forsetahjónin munu einnig heilsa upp á gesti.

Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu sem eru síðari tíma viðbyggingar. Á forsetasetrinu er merkilegt úrval myndlistar og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins. Starfsmenn embættis forseta Íslands veita upplýsingar um það sem fyrir augu ber og verða gestum til aðstoðar.

Sjá einnig frétt á vef forseta Íslands.

Dagskrá í Bókasafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands á Safnanótt.
Dagskrá Vetrarhátíðar.