• 26.9.2018, 18:00, Bessastaðir

Saga – gengið frá Bessastöðum- 26. september kl. 18

  • Bessastaðir

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september.  Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land.  Þetta er annað árið í röð sem blásið er til þessa átaks en göngurnar eru um leið áframhald vinsælla sögu- og fræðslugangna Garðabæjar sem hafa verið farnar á undanförnum árum. 

Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga í september og verður næsta ganga miðvikudaginn 26. september kl. 18. Þá er mæting á Bessastaði, á bílastæðið við kirkjuna, og mun

Anna Ólafsdóttir Björnsson sagnfræðingur leiða göngu um Bessastaði. Gengið verður að Skansinum og til baka.

Göngurnar eru um leið áframhald sögu- og fræðslugangna sem hafa verið í boði á þessu ári og undanförnu ári í Garðabæ og hafa verið vel sóttar af almenningi.  

Allar upplýsingar um göngustaði og gönguleiðir annars staðar á landinu má finna á vef verkefnisins www.fi.is/lydheilsa .