• 23.3.2021, 17:00 - 19:30, Hönnunarsafn Íslands

Skapandi fataviðgerðasmiðja

Þriðjudaginn 23. mars kl. 17-19:30 býður textílhönnuðurinn og listakonan Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrarí upp á opna smiðju í skapandi fataviðgerðum í Hönnunarsafni Íslands. Skráning er nauðsynleg með kennitölu og símanúmeri á netfangið yrj1992@gmail.com.

Smiðjan býður upp á verkfæri, efnivið og aðstöðu fyrir útsaum, prjón, þurr þæfingu, vélsaum og ýmiskonar fræðsluefni um fataviðgerðir. Þátttakendur eru hvattir til að mæta með flíkur sem þarf að lappa upp á eða breyta. Einnig er í boði að taka að sér peysu sem þarfnast viðgerða frá fatasöfnun Rauða Krossins á Íslandi. Ef þáttakendur eru með sína eigin hugmynd að fataviðgerð er um að gera að koma með eigið garn eða efnivið fyrir viðgerðina.

Þátttakendur þurfa ekki að hafa neina reynslu af fataviðgerðum til að taka þátt. Gert er ráð fyrir því að ef börn vilja taka þátt komi þau í fylgd fullorðins. Ef spurningar vakna um þáttöku skal senda tölvupóst á yr@yrurari.com eða senda inn fyrirspurn á facebook hópinn "Peysa með öllu".
Smiðjurnar eru fríar, fullt aðgengi er í rýmið og geta þáttakendur fengið aðstoð á bæði íslensku og ensku.
Verkefnið er hluti af lokaverkefni Ýrar úr Listkennsludeild Listaháskóla Íslands.