• 16.2.2019, 13:30, Laugardalshöll

Stjörnufólk í bikarúrslitum

  • Stjarnan

Karla- og kvennalið Stjörnunnar eru bæði komin í úrslit bikarkeppni í körfubolta sem fram fer á laugardaginn 16. febrúar nk. 

Karla- og kvennalið Stjörnunnar eru bæði komin í úrslit bikarkeppni í körfubolta sem fram fer nú um helgina. Kvennaliðið er í fyrsta sinn að spila úrslitaleikinn en liðið mætir Val kl. 13:30 á morgun, laugardaginn 16. febrúar. Strax á eftir, kl. 16:30 mætir karlalið Stjörnunnar liði Njarðvíkur.

Garðbæingar eiga því möguleika á að fagna tvöföldum bikarmeistaratitili um helgina. Við hvetjum alla til að mæta í Laugardalshöll á laugardag og styðja okkar fólk!

Leikirnir verða einnig sýndir í beinni útsendingu á RÚV.