Tækni og vísindasmiðja - tölvur og ávaxtafjör kl. 13-15
Bókasafn Garðabæjar og Skema bjóða upp á ókeypis forritunarnámskeið laugardaginn 2. febrúar kl. 13-15.
Bókasafn Garðabæjar og Skema bjóða upp á ókeypis forritunarnámskeið laugardaginn 2. febrúar kl. 13-15. Þar munu leiðbeinendur frá Skema kynna fyrir okkur Makey Makey. Þá lærum við að stjórna tölvum á frumlegan og skemmtilegan hátt með alls kyns hlutum, t.d. ávöxtum. Þetta er gott tækifæri fyrir krakka að kynnast, fikta og læra saman um spennandi tækni og skapandi forritun.
Frjáls mæting frá kl. 13 -15 en ef þátttaka er mikil gæti þurft að samnýta tölvur og skiptast á. Námskeiðið er opið öllum áhugasömum krökkum og kostar ekkert.