• 18.11.2021, 10:30, Bókasafn Garðabæjar

Tengslamyndun foreldra og barns - foreldraspjall

Fríður Guðmundsdóttir, sálfræðingur hjá Geðheilsuteymi Fjölskylduvernd, ræðir um 1000 fyrstu dagana í lífi barns – frá getnaði til 2 ára aldurs – þroska barna og þarfir á þessu tímabili. Fimmtudaginn 18. nóvember kl. 10:30.

Fjallað verður um tengslamyndun foreldra og barns og hvernig tengslamyndunin þróast í gegnum umönnunarferli þessara fyrstu ára og hefur áhrif á þroska barnsins sem vitsmuna-, tilfinninga- og félagsveru.

Boðið verður upp á umræður og spjall í tengslum við þetta efni og verður þá stuðst við bók Sæunnar Kjartansdóttur, 1000 fyrstu dagarnir - Barn verður til.