Uppskeruhátíð Sumarlesturs: Gunnar Helgason
Hinn óviðjafnalegi Gunnar Helgason rithöfundur með meiru mun mæta á svæðið, skemmta með upplestri úr nýjustu bók sinni og gefa öllum duglegum lestrarofurhetjum glaðninga.
Uppskeruhátíð sumarlestursátaksins á Bókasafni Garðabæjar verður haldin laugardaginn 24. ágúst kl. 12:00.Hinn óviðjafnalegi Gunnar Helgason rithöfundur með meiru mun mæta á svæðið, skemmta með upplestri úr nýjustu bók sinni og gefa öllum duglegum lestrarofurhetjum glaðninga.Einnig verður gómsæt lestrarkaka fyrir alla gesti (mamma og pabbi mega fá sér eina sneið) og hægt verður að skreyta torgið með fallegum krítarmyndum.