• 8.5.2023 - 19.5.2023, Garðabær

Vorhreinsun lóða

Eins og síðustu ár eru Garðbæingar hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 8-19. maí.

Eins og síðustu ár eru Garðbæingar hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 8-19. maí. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Farið verður á milli allra hverfa bæjarins og nánari upplýsingar um hvenær verður hirt úr hvaða hverfum má sjá hér að neðan.

Samhliða hefst götusópun í íbúðahverfum þegar vorhreinsunin stendur yfir en byrjað var að sópa aðalgötur bæjarins í apríl.

Dagsetningar eru:

8. til 11. maí 2023: Flatir- Ásgarður-Fitjar-Hólar-Ásar-Grundir-Sjáland-Arnarnes-Akrar-Vífilsstaðir-Urriðaholt 

12. -15. maí 2023: Tún-Mýrar-Garðatorg-Móar-Byggðir-Lundir-Búðir-Bæjargil-Hæðarhverfi-Hnoðraholt

16.-19. maí 2023: Álftanes-Garðahverfi-Hleinar-Prýðar og við Álftanesveg