• 9.5.2022 - 20.5.2022, Garðabær

Vorhreinsun lóða 9.-20. maí

  • Vorhreinsun 2022

Eins og síðustu ár eru Garðbæingar hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 9-20. maí. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.

Gróður á lóðum - leiðbeiningar um alhliða ræktun

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar verður að þessu sinni dagana 25. apríl – 9. maí 2022 en þá eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. Hópar geta sótt um að fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi og geta fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar. Áhugasamir hópar geta haft samband við verkefnastjóra garðyrkjudeildar, s. 820 8574, lindajo@gardabaer.is.

Íbúar eru hvattir til að sýna gott fordæmi með því að taka nærumhverfi í fóstur og hlúa að því. Starfsmenn bæjarins munu hirða upp alla poka og annað eftir ruslatínslu bæjarbúa, hópa eða einstaklinga. Hægt er að nálgast poka í áhaldahúsinu við Lyngás 18 og þátttakendur eru hvattir til að flokka plast sérstaklega frá öðru rusli í glæran plastpoka. Þátttakendur eru beðnir um að fylla ekki poka þannig að þeir verði of þungir.

Götusópun hefst í apríl á aðalgötum og í maí verða íbúðagötur sópaðar.

Vorhreinsun lóða 9-20. maí 2022

Eins og síðustu ár eru Garðbæingar hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 9-20. maí. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Farið verður á milli allra hverfa bæjarins og nánari upplýsingar um hvenær verður hirt úr hvaða hverfum má sjá hér í töflu fyrir neðan.

Athugið: Íbúar eru beðnir um að fylla ekki pokana með garðúrgangingum þannig að þeir verði of þungir þar sem þeir eru fjarlægðir af lóðamörkum með handafli og settir í bíla.

Hreinsun á garðúrgangi: (ATH. Uppgefnar dagsetningar á hirðingu í hverfum eru til viðmiðunar)

9-12. maí 2022 Flatir, Ásgarður, Fitjar, Hólar, Ásar, Grundir, Sjáland, Arnarnes, Akrar, Vífilsstaðir, Urriðaholt
13.-16. maí 2022 Tún, Mýrar, Garðatorg, Móar, Byggðir, Lundir, Búðir, Bæjargil, Hæðahverfi, Hnoðraholt
17.-20. maí 2022 Álftanes, Garðahverfi, Prýði, Hleinar og v. Álftanesveg


Gerum Garðabæ að snyrtilegasta bæ landsins!