Fjárhagsáætlun 2020 - ábendingar íbúa

Íbúum Garðabæjar gefst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2020-2023. Allar ábendingar verða teknar til skoðunar á milli umræðna í bæjarstjórn. Hægt var að senda inn ábendingar til 6. nóvember 2019.

Svör við ábendingum íbúa um fjárhagsáætlun má sjá hér.

Samráðsgátt fyrir íbúa um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020

ÁBENDINGAR ÍBÚA UM FJÁRHAGSÁÆTLUN - SAMRÁÐSGÁTT 

  • Við innskráningu má sjá ferninga fyrir sjö mismunandi yfirflokka, og má setja þar undir ábendingar og tillögur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar. Áttundi flokkurinn er merktur „Annað“ og þar má leggja fram tillögur sem ekki eiga heima undir yfirflokkunum sjö.
  • Einnig má ræða og færa rök fyrir og gegn ábendingum sem búið er að setja inn.


Ábendingar geta t.d. snúið að: 

  • Tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar
  • Nýjum verkefnum sem bærinn ætti að sinna
  • Verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins


Þátttaka í samráðsgáttinni er valkvæð og vinnsla þeirra upplýsinga sem safnast byggir á samþykki þátttakenda sem gefið er við innskráningu.

Einnig var hægt að senda inn ábendingar um fjárhagsáætlun í gegnum skráningarform á vef Garðabæjar: Innsendingarform vegna ábendinga má finna hér. 

Um fjárhagsáætlun Garðabæjar - vinnuferli

Fjárhagsáætlun Garðabæjar var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 7. nóvember 2019. Gert er ráð fyrir að síðari umræða um fjárhagsáætlun fari fram á fundi bæjarstjórnar fimmtudaginn 5. desember 2019.

Forsendur fjárhagsáætlunar 2020

Vinnuferli fjárhagsáætlunar

Vinnuferli við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar 2020