10.09.2024 kl. 08:00 kom bæjarráð Garðabæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi. |
|
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir aðalmaður, Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður, Ingvar Arnarson aðalmaður, Guðlaugur Kristmundsson aðalmaður, Brynja Dan Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. |
|
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: |
|
1. 2407142 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - forsendur og ferli. |
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025 (2025-2028). Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði fyrir lok október 2024 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 7. nóvember 2024. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 5. desember 2024.
Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2025.
|
|
|
|
2. 2402030 - Innleiðing ræstingar í stofnanir Garðabæjar. |
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir minnisblað varðandi innleiðingu ræstingar í stofnunum Garðabæjar, skv. verksamningi við Daga hf., grundvallað á útboðsgögnum dags. í maí 2024 og tilboði Daga hf dags. 24. júní 2024. |
|
|
|
3. 2409089 - Bréf stjórnar SSH, dags. 4. september 2024, um samhæfða svæðisskipan í málefnum barna. |
Erindi Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um samhæfða svæðisskipan í málefnum barna. Í erindinu kemur fram að samþykkt hafi verið að koma á fót sameiginlegu farsældarráði innan höfuðborgarsvæðisins og að framkvæmdastjóra samtakanna sé falið að gera viðaukasamning um Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins við mennta- og barnamálaráðuneytið um fjölgun ráðningar verkefnastjóra sem starfi að undirbúningi stofnunar farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins og ráða verkefnastjóra á grundvelli hans. |
|
|
|
4. 2409101 - Ársskýrsla umboðsmanns barna (2023). |
Lögð fram tilkynning frá forsætisráðuneytinu þar sem fram kemur að umboðsmaður barna hafi afhent forsætisráðuneytinu ársskýrslu embættisins fyrir árið 2023. |
|
|
|
5. 2205413 - Viðauki við ráðningarsamning bæjarstjóra. |
Viðauki við ráðningarsamning bæjarstjóra er samþykktur.
Viðaukinn verður lagður fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
|
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00. |