Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
7. fundur
13.06.2025 kl. 11:00 kom afgreiðslufundir skipulagsstjóra saman til fundar í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg.
Fundinn sátu: Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri. Anna Guðrún Gylfadóttir byggingarfulltrúi. Hrönn Hafliðadóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

Fundargerð ritaði: Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: 
1. 2504321 - Stekkholt 21-29 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Einnig er lögð fram fyrirspurn um að GK endahúss nr. 29 verði 79.00 í stað 79.20. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2020 sbr. 3 mgr. sömu greinar hvað GK varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
2. 2504320 - Stekkholt 11-19 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
3. 2505386 - Stekkholt 55 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Stekkholt 55-61, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
4. 2505198 - Móaflöt 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Móaflöt 12. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem eru í samræmi við framlagða uppdrætti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00. 
Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).