24. feb. 2021

Innritun í grunnskóla

Innritun í grunnskóla í Garðabæ fyrir skólaárið 2021-2022

  • Verkefnavinna Garðaskóli

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2015) og 8. bekk (f. 2008) fer fram dagana 8. - 12. mars nk.
Innritað er hér á Þjónustugátt Garðabæjar. 
Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla.Innritun lýkur 12. mars nk.

Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 12. mars nk.

Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Sama gildir fyrir sérstækt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk.
Innritað er hér á Þjónustugátt Garðabæjar. 
Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum.

Upplýsingar um kynningar hjá grunnskólum í Garðabæ í mars fyrir forráðamenn nýnema.

Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:


Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2021-2022 er til 10. apríl og skulu umsóknir berast skóladeild Garðabæjar. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár. Hægt er að sækja um rafrænt hér á Þjónustugátt Garðabæjar.

Í Garðabæ velja foreldrar í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt. Skólastjórnendur grunnskóla í Garðabæ geta heimilað nemanda með lögheimili í öðru sveitarfélagi en Garðabæ skólavist í grunnskóla Garðabæjar enda sé nægjanlegt húsrými til staðar, ákvörðunin leiði ekki til viðbótarkostnaðar fyrir Garðabæ og fyrir liggi samningur við hlutaðeigandi sveitarfélag um greiðslu námskostnaðar.