15. jún. 2023

Malbikun á Álftanesvegi 15.& 16. júní

Unnið verður á einni akrein í einu og íbúum því hleypt inn og út af svæðinu, en búast má við einhverjum töfum vegna framkvæmdarinnar.


Fimmtudaginn 15.júní og föstudaginn 16. Júní mun Loftorka vinna við malbikun á Álftanesvegi, frá Garðavegi að Norðurnesvegi, ef veður leyfir.

Unnið verður á einni akrein í einu og íbúum því hleypt inn og út af svæðinu, en búast má við einhverjum töfum vegna framkvæmdarinnar.

Framkvæmdin verður sem hér segir:

  • Fimmtudagur, 15. Júní: Unnið verður frá kl. 9.00 til kl. 14.00. Unnið er á akrein frá Álftanesi og hluta af Fógetatorgi. Suðurnesvegur lokaður við Breiðumýri og umferð handstýrt í gegnum hringorg um Norðurnesveg. Aðkoma að Bessastöðum opin.
  • Föstudagur, 16. Júní: Unnið verður frá kl. 9.00 til 15.30. Unnið er á akrein til Álftanes og hluta af Fógetatorgi. Norðurnesvegur lokaður við Eyvindarstaðarveg og umferð handstýrt í gegnum hringtorgið um Norðurnesveg. Aðkoma að Bessastöðum er lokuð, en minni bílar geta ekið eftir göngustíg meðfram hringtorgi og inn á Norðurnesveg og þaðan í burtu um Breiðmýri og Suðurnesveg.

Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.