20. maí 2021

Malbikun í Krókamýri föstudaginn 21. maí

Hluti Krókamýrar verður lokaður föstudaginn 21. maí frá kl. 9:00 og fram eftir degi vegna malbikunar

Föstudaginn 21. maí mun Loftorka vinna við malbikun í Krókamýri, ef veður leyfir.

Byrjað verður um klukkan 9:00 og unnið fram eftir degi. Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur.

Sjá má staðsetningu á kaflanum og lokun á myndinni.