Garðabær – Göngu- og hjólastígur í Garðahrauni

11. jún. 2021

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið Göngu- og hjólastígur í Garðahrauni.

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið Göngu- og hjólastígur í Garðahrauni.

Verkið felst í að gera göngustíga tilbúna fyrir malbik og uppsetningu götulýsingar meðfram stígum. Garðahraun er friðlýst svæði og mun Umhverfisstofnun hafa sér eftirlit með framkvæmdum.

Helstu magntölur eru:

  • Göngustígar 1.404 m
  • Ljósastólpar 40 stk.

Lokaskiladagur verksins er 15. nóvember 2021.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi hér á vef Garðabæjar.

Tilboð skulu hafa borist bæjarverkfræðingnum í Garðabæ, eigi síðar en Þriðjudaginn 29. júní 2021 kl. 11:30, þar sem þau verða opnuð.

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar

Útboðsgögn