Hofsstaðaskóli – Endurbætur 1. áfangi.
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið „Hofsstaðaskóli, endurbætur á lóð - 1.áfangi“ í samræmi við meðfylgjandi útboðsgögn.
Um er að ræða endurgerð á aðkomusvæði skólans, leikssvæðum, stéttum og yfirborði battavallar í austurlóð, uppsetningu á leiktækjum, búnaði, stálrimlagirðingu. Frágangi á fráveitulögnum við aðkomusvæði ásamt lýsingu á lóð. Upprif á yfirborðsefnum, búnaði og leiktækjum. Yfirborðsfrágangur er hellulögn, malbik, lagning fallvarnarefnis og gervigrass ásamt þökulögn og koma fyrir gróðurbeðum. Verktaki skal framkvæma verkið samkvæmt eftirfarandi lýsingu og teikningum hönnuða.