Rammasamningur – málningarvinna

18. jún. 2021

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna - Málningarvinna

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna - Málningarvinna

Verkið felst í að þjónusta reglulega málningarvinnu á vegum sveitarfélagsins. Um er að ræða rammasamning við einn aðila til að leysa tilfallandi viðhalds- og þjónustuverkefni fyrir mannvirki bæjarfélagsins
Helstu magntölur eru:

  • Tímavinna allt að 2.200 klst. á samningstímanum
  • Mismunandi málaðir fletir, 7.700 m2 á samningstímanum


Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi hér á vefsíðu Garðabæjar.

 

Helstu dagsetningar:

  • Afhending tilboða fyrir kl 14:30......................................................................................... 6. júlí 2021.
  • Upphaf samnings ................................................................................................................ 1.ágúst 2021.

Samningstími er tvö ár með mögulegum framlengingum tvisvar sinnum til eins árs í senn.

Tilboð skal afhenda á skrifstofu Strendings ehf, verkfræðiþjónustu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 14:30 þriðjudaginn 6. júlí 2021.Tilboð verða opnuð á rafrænum opnunarfundi sama dag kl 15:00

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar.

Útboðsgögn