Rammasamningur – raflagnir

18. jún. 2021

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna - Raflagnir

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna - Raflagnir

Verkið felst í að þjónusta tilfallandi raflagnavinnu á vegum sveitarfélagsins. Garðabæ hefur verið skipt upp í þrjú svæði og velja bjóðendur hvaða svæði þeir bjóða í.


Helstu magntölur eru:

  • Tímavinna, 2.150 klst. á samningstímanum fyrir hvert svæði


Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi hér á vefsíðu Garðabæjar.

 

Helstu dagsetningar:

  • Afhending tilboða fyrir kl 13:30....................... 6. júlí 2021.
  • Upphaf samnings .................................................. 1.ágúst 2021.

Samningstími er tvö ár með mögulegum framlengingum tvisvar sinnum til eins ára í senn.

Tilboð skal afhenda á skrifstofu Strendings ehf, verkfræðiþjónustu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 13:30 þriðjudaginn 6. júlí 2021. Tilboð verða opnuð á rafrænum opnunarfundi sama dag kl 14:00

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar.

Útboðsgögn