Stekkjarflatavöllur – Stækkun / Hraunhólar – Endurnýjun hitaveitustofnlagnar
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Stekkjarflatavöllur – Stækkun / Hraunhólar – Endurnýjun hitaveitustofnlagnar.
Framkvæmdin felur í sér fullnaðarfrágang við breikkun æfingavallar, endurnýjun stofnlagnar hitaveitu ofan hans milli vallarins og íbúðabyggð og fullnaðarfrágang göngustígs sem liggur að mestu í lagnalegu ásamt stíglýsingu.
Helstu magntölur eru:
- Upprif hitaveitustokks 310 m
- Upprif eldri hitaveitulagna 380 m
- Upprif malbiks 345 m2
- Völlur – Losun klappar 260 m3
- Völlur og stígur - Uppgröftur 1.960 m3
- Völlur og stígur - Malarfylling 1.250 m3
- Stígur, raflagnir – Uppgröftur og endurf. 400 m
- Jöfnunarlag, 8cm 1.200 m2
- Jöfnunarlag, 5cm 880 m2
- Malbik, 5cm 860 m2
- Þökulögn 640 m2
- Lagnir- Uppgröftur 1.600 m3
- Lagnir- Fylling 670 m3
- Lagnir – Losun klappar 10 m3
- Fráveitulagnir 30 m
- Snjóbræðsla 4.820 m
- Hitaveitulagnir 328 m
- Jarðstrengir 610 m
- Ídráttarrör 325 m
Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með mánudeginum 30.06.2025 kl. 16:00
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en þriðjudaginn 22.07.2025, kl. 14:00.