Útboð: Loftræsing sundlaugarsalar

18. mar. 2020

Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Loftræsing sundlaugarsalar, Skólabraut 8

 

Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Loftræsing sundlaugarsalar, Skólabraut 8

Verkið felst í fjarlægingu eldri loftræsibúnaðar, sköffun og uppsetningu nýs loftræsibúnaðar í og við sundlaugarsal í íþróttamiðstöðinni Mýrinni, Skólabraut 8, í Garðabæ.

Helstu magntölur eru:

· Fjöldi uppsettra loftræsikerfa, 2 stk.

· Loftmagn í kerfum, ~2.000 L/s.

· Varmaendurvinnslur í samstæðum, 2 stk.


Tilboðið skal gert á grundvelli útboðsgagna frá Strendingi verkfræðiþjónustu dagsett í mars 2020. Útboðsgögnin verða einungis aðgengileg á rafrænu formi á vef Garðabæjar, gardabaer.is, þar sem þeir sem vilja geta nálgast gögnin og skráð sig fyrir móttöku þeirra.

Helstu dagsetningar:

Útboðsgögn aðgengileg á vef Garðabæjar frá ........................ 20. mars 2020

Opnun tilboða.............................................................. þriðjudaginn 7. apríl 2020

Verklok ....................................................................................................... ágúst 2020

Tilboð verða opnuð á skrifstofu Strendings ehf., Fjarðargötu 13-15, 3.h., 220 Hafnarfirði, þriðjudaginn 7. apríl 2020, kl. 14.00.

Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar

Útboðsgögn