Útboð - Urriðaholt - Leiksvæði og stígar

12. mar. 2024

Umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið ,,Leiksvæði og stígar í Urriðaholti”.

Verkið felst í gerð göngustíga með götulýsingu og leiksvæða á átta svæðum í Urriðaholti.

Helstu magntölur eru:

Uppsetning leiktækja 20 stk.
Hellulögn 1.190 m2
Einingaþrep 380 stk.
Uppsetning ljósastólpa 35 stk.
Grasþakning 4.000 m2

Lokaskiladagur verksins er 1. nóvember 2024.

Útboðsgögn eru afhent á rafrænu formi hér fyrir neðan á vef Garðabæjar.

Tilboð skulu hafa borist Strendingi ehf. Dalshrauni 3, eigi síður en miðvikudaginn 3. Apríl 2024 kl 11:30. Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 3.apríl 2024, kl. 11:30.

Umhverfissvið Garðabæjar

Útboðsgögn