Útboð: Urriðaholt - Malbikun gatna 2020

30. jún. 2020

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Urriðaholt - Malbikun gatna 2020

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið:
Urriðaholt – Malbikun gatna 2020

Verkið felst í jarðvegsskiptum, upphækkun brunna og niðurfalla, gerð snjóbræðslukerfis í götur og malbikun gatna í nýju íbúðahverfi í Urriðaholti.
Verkinu skal lokið fyrir 1. október 2020.

Helstu magntölur eru:
Heflun og þjöppun yfirborðs 2.400 m2
Efra burðarlag 240 m3
Snjóbræðslulagnir 4.500 m
Malbikun 6.630 m2
Upphækkun á brunnum 49 stk.
Upphækkun á niðurföllum 2 stk.

Útboðsgögn er hægt að nálgast hér fyrir neðan á vef Garðabæjar, þriðjudaginn 30. júní 2020.

Tilboð verða opnuð hjá EFLU verkfræðistofu, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 14. júlí, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.

Útboðsgögn