Útboð - viðgerðir og yfirlagnir gatna og stíga

16. mar. 2019

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Viðgerðir og yfirlagnir gatna og stíga í Garðabæ 2019

Útboð
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið:
Viðgerðir og yfirlagnir gatna og stíga í Garðabæ 2019
Um er að ræða viðgerðir á malbiki gatna og yfirlagnir á götum auk malbikunar á stígum í Garðabæ. Verkinu skal lokið fyrir 31. ágúst 2019.

Helstu magntölur eru:
Malbikun 17.500 m2
Viðgerðir 1.500 m2

Útboðsgögn er hægt að nálgast hér fyrir neðan. 

Tilboð skulu hafa borist til Eflu verkfræðistofu, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 1. apríl 2019, kl. 14.00, þar sem þau verða opnuð.

Útboðsgögn