Samþykkt og gildistaka skipulagsáætlana

Hér má nálgast upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar og gildistöku þeirra deiliskipulagsáætlana sem gerðar voru athugasemdir við í auglýsingaferli. Upplýsingarnar varða deiliskipulagsáætlanir sem voru samþykktar frá október 2019.

Upplýsingar um samþykktir og gildistöku annarra deiliskipulagsáætlana eru aðgengilegar á kortavef Garðabæjar og skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

Ákvarðanir bæjarstjórnar um deiliskipulagsáætlanir eru stjórnvaldsákvarðanir sem eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda.


Frjóakur 9

9.11.2021

Óveruleg breyting á deiliskipulagi Akra

Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 21. október 2021 samþykkti bæjarstjórn samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað með umsögn sveitarstjórnar.

Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 8. nóvember 2021 nr. 1247/2021. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með kynnt.

Breytingin gerir ráð fyrir því að flatarmál neðri hæðar húss (Frjóakur 9) (kjallara) sé stærri en 70% að flatarmáli aðalhæðar. 

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.