Hnoðraholt norður - Þorraholt 2-4 - Deiliskipulagsbreyting
11.9.2025
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 4. september 2025 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi 28. ágúst 2025.
Samþykkt: Þann 4. september 2025 samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoð'raholtsnorður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi 28. ágúst 2025.
Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 10. september 2025 nr. 963/2025. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarráðs hér með kynnt.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.