Samþykkt og gildistaka skipulagsáætlana

Hér má nálgast upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar og gildistöku þeirra deiliskipulagsáætlana sem gerðar voru athugasemdir við í auglýsingaferli. Upplýsingarnar varða deiliskipulagsáætlanir sem voru samþykktar frá október 2019.

Upplýsingar um samþykktir og gildistöku annarra deiliskipulagsáætlana eru aðgengilegar á kortavef Garðabæjar og skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

Ákvarðanir bæjarstjórnar um deiliskipulagsáætlanir eru stjórnvaldsákvarðanir sem eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda.


Holtsvegur 20, leikskólalóð – Breyting á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts

15.7.2023

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 15. júní 2023 var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt:

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 15. júní 2023 var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær til leikskólalóðarinnar við Holtsveg 20. Samþykktin byggir á tillögu skipulagsnefndar frá fundi þann 2. júní 2023.

Gildistaka :

Samþykkt um breytingu á deiliskipulaginu öðlast gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda þann 14. júlí 2023.

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglysingar í B-deild Stjórnartíðinda.

Niðurstaða bæjarstjórnar er hér með auglýst samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.